Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 31. mars 2019 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sarri farinn að venjast baulinu frá stuðningsmönnum
Mynd: Getty Images
Stuðningsmenn Chelsea eru að missa þolinmæðina gagnvart Ítalanum Maurizio Sarri.

Sarri gat prísað sig sælann eftir 2-1 sigur á Cardiff fyrr í dag. Chelsea lenti undir og jafnaði með kolólöglegu marki. Cesar Azpilicueta skoraði en var mjög rangstæður.

Stuðningsmenn Chelsea á vellinum létu Sarri heyra það. Það var baulað og söngurinn, 'Sarri out' var vinsæll á vellinum.

Sarri var spurður út í þetta eftir leikinn í dag.

„Því miður er ég orðinn vanur þessu. Ég verð að vinna í því að breyta þeirra skoðun," sagði Sarri við blaðamenn.

Það mikilvægasta fyrir Sarri er að koma Chelsea í topp fjóra. Liðið er sem stendur í sjötta sæti, einu stigi frá Manchester United og Tottenham.


Athugasemdir
banner
banner