Munaði 40 millimetrum
Það munaði að lokum aðeins einu stigi þegar uppi var staðið í titilbaráttunni á Englandi.
Manchester City vann fjórtán leiki í röð og kláraði titilinn. Liverpool gerði sitt besta en það dugði ekki að þessu sinni.
Tvö atvik eru sérstaklega minnistæð í þessari baráttu þegar hún er gerð upp. Millímetraspursmál í bæði skiptin. Samtals rétt rúmir 4 sentímetrar.
Fyrra atvikið var þegar John Stones bjargaði órúlega í innbyrðisleik liðanna í janúar eftir klaufalegt samstuð við Ederson. Marklínutækni sýndi að boltinn var ekki allur inni. City kláraði leikinn og var það eina tap Liverpool á leiktíðinni.
Seinna atvikið átti sér stað í leik Burnley og Manchester City. Aguero átti þá skot sem virtist vera bjargað á marklínu en tæknin dæmdi markið gott og gilt. Markið var eina mark leiksins í 0-1 sigri City.
40,5 millímetrar sem hafa gífurlega mikið að segja.


