Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   fim 01. ágúst 2019 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Leikmaður Sheffield Wednesday í sex leikja bann
Mynd: Getty Images
Fernando Forestieri, sóknarmaður Sheffield Wednesday, hefur verið dæmdur í sex leikja bann fyrir kynþáttafordóma.

Atvikið átti sér stað í æfingaleik gegn Mansfield á síðasta ári. Argentíski-Ítalinn var einnig sektaður um 25 þúsund pund, sem jafngilda rúmlega 3,7 milljónum íslenskra króna.

Hann ætlar að áfrýja dómnum og er honum frjálst að spila á meðan ákvörðun er tekin um áfrýjun hans.

„Ég er miður mín og vonsvikinn," sagði Forestieri um dóminn hjá aganefnd.

Hann hefur alltaf neitað sök í málinu.

Ef bannið stendur mun hann missa af fyrstu sex leikjum Sheffield Wednesday á tímabilinu.
Athugasemdir
banner
banner