Ríkasti maður Englands kaupir Nice - Á jarðir á Íslandi
Dolberg á leiðinni til Nice?
Jim Ratcliffe, ríkasti maður Englands, hefur fest kaup á franska félaginu Nice.
Ratcliffe ætlar sér stóra hluti með Nice og vill koma félaginu á kortið í Evrópu. Ratcliffe á einnig Lausanne sem spilar í svissnesku B-deildinni.
Ratcliffe er milljarðamæringur og stór fjárfestir en hann á meðal annars margar jarðir á Vopnafirði og í Þistilfirði.

Patrick Vieira er þjálfari Nice en liðið hefur unnið fyrstu tvo leiki tímabilsins.
Vieira fær strax fé til leikmannakaupa frá Ratcliffe og framherjinn Kasper Dolberg gæti meðal annars komið frá Ajax í vikunni.