Marcus Rashford hefur samþykkt að ganga alfarið til liðs við Barcelona - Darwin Nunez eftirsóttur - Rodri er orðaður við Real Madrid
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
„Viðurkenni að það er erfitt að sjá eftir svona mörgum leikmönnum“
Evrópuævintýri Blika heldur áfram - „Tekur alltaf tíma að koma með nýjar áherslur“
„Segir ekki nei þegar Víkingur vill fá þig“
„Viljum ekki fylla í hópinn bara með hveiti heldur þurfum við einhver krydd“
Gummi Magg: Erum mættir til að skrifa söguna
Böddi um skiptin óvæntu: Var ekki í tilfinningalegu jafnvægi
Arnór Gauti: Mun aldrei gleyma lokaflautinu á Laugardalsvelli
Sameiningaviðræður ÍR og Leiknis: Sumir láta hreinlega tilfinningarnar ráða
Gylfi Tryggva: Höfum sótt einn leikmann innanlands og það var landsliðsmaður
Óskar Smári: Klúbburinn hefur þróast í rétta átt
Markadrottningin komin heim: Voru möguleikar úti en Breiðablik besti kosturinn
   mið 01. febrúar 2017 15:45
Elvar Geir Magnússon
Viðtal
Heimir Hallgríms: Fengum nei frá nánast öllum félögum
Davíð Þór Viðarsson, fyrirliði FH, er í hópnum.
Davíð Þór Viðarsson, fyrirliði FH, er í hópnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við förum með ungt og óreynt lið í þetta verkefni en að sama skapi efnilegt lið," segir landsliðsþjálfarinn Heimir Hallgrímsson um landsliðshópinn sem mætir Mexíkó eftir viku.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er að láta reisa múr milli Bandaríkjanna og Mexíkó en leikurinn mun fara fram í Las Vegas í Bandaríkjunum, ansi kaldhæðnislegt á þessum tímapunkti!

„Umhverfið í kringum þennan leik er sérstakt. Ég ræddi við blaðamann í Mexíkó í gær og hann sagði að þetta yrði táknrænn leikur fyrir Mexíkóa í Bandaríkjunum, þeir myndu fjölmenna og styðja liðið sitt."

Aldrei eins erfitt að velja hóp
Ekki er um opinberan landsleikjadag að velja og var mikið púsluspil fyrir Heimi að setja saman hópinn. Mörg félög neituðu að láta sína menn í verkefnið.

„Það hefur aldrei verið jafn erfitt að velja hópinn. Auðvitað hefðum við viljað hafa eldri leikmenn og menn sem eru nær þessum venjulega hópi. Við hefðum viljað hafa sterkari hóp. Við fengum nei frá nánast öllum liðum og upprunalegi hópurinn sem við höfðum í huga fyrir þetta verkefni hefur breyst mikið," segir Heimir.

Davíð getur stjórnað þessum guttum
Sigurður Egill Lárusson átti að vera í hópnum en er í Tékklandi þar sem hann er líklega að fara að skrifa undir hjá Jablonec. Davíð Þór Viðarsson, fyrirliði FH-inga, er í hópnum en hann hefur leikið átta landsleiki. sá síðasti var vináttulandsleikur gegn Georgíu 2009.

„Við þurftum leiðtoga og leikstjórnanda, mann með leikreynslu á miðjuna. Við höfum hann fyrir framan nefið á okkur daginn út og daginn inn í Pepsi-deildinni. Ef einhver getur stjórnað þessum guttum er það Davíð."

Held að Tryggvi eigi bjarta framtíð
Tryggvi Hrafn Haraldsson, tvítugur sóknarmaður ÍA, var óvænt valinn í hópinn. Heimir var mjög hrifinn af honum í þeim leikjum sem hann sá með Skagamönnum í fyrra.

„Mér fannst mjög mikið til hans koma. Ég held að þessi strákur eigi bjarta framtíð ef hausinn á honum er rétt skrúfaður. Það er gaman að geta gefið svona strákum tækifæri og fengið að sjá þá," segir Heimir.

Margir hafa furðað sig á því að Hilmar Árni Halldórsson, leikmaður Stjörnunnar, hafi ekki verið valinn en Hilmar var stoðsendingahæsti leikmaður Pepsi-deildarinnar í fyrra.

„Í algjörum heiðarleika talaði ég mikið um hann við Sigga Dúllu. Hilmar var virkilega inn í myndinni hjá okkur. Okkur fannst við á endanum þurfa meiri reynslu inn á miðjuna. Við höfum stuttan tíma, þetta eru tvær æfingar og svo leikur."

Landsliðshópur Mexíkó fyrir leikinn hefur verið opinberaður. Þar má finna hinn margreynda Rafael Marquez, fyrrum leikmann Barcelona. Hann verður 38 ára síðar í þessum mánuði og hefur leikið 134 landsleiki fyrir Mexíkó.

„Við vorum að hlæja að því að ef við deilum leikjafjölda Marquez í þrennt er hann samt leikjahærri en allt landsliðið okkar. Deildin í Mexíkó er gríðarlega sterk og okkur bíður mjög erfitt verkefni. Við verðum að vera 100% einbeittir," segir Heimir Hallgrímsson en viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner