mið 01. mars 2023 19:54
Brynjar Ingi Erluson
Ætlar sér að vera áfram í ensku úrvalsdeildinni
Mynd: Getty Images
Öll einbeiting Alexis Mac Allister, leikmanns Brighton, fer á að klára tímabilið með liðinu.

Mac Allister var einn af bestu leikmönnum argentínska landsliðið sem vann HM undir lok síðasta árs.

Hann hefur verið orðaður við öll stærstu félög Evrópu undanfarnar vikur og hefur þá Manchester City sterklega komið til greina en hann ýtir undir þann orðróm í viðtali við Tyc Sports.

„Í augnablikinu er ég að njóta þess að lifa í núinu með Brighton og ekki að hugsa um framtíðina, en ég væri mjög til í að næsta lið sem ég spila með sé í ensku úrvalsdeildinni,“ sagði Mac Allister.

Mac Allister hefur spilað 22 leiki í deild- og bikar með Brighton á þessari leiktíð og skorað 7 mörk.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner