Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 01. mars 2023 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Keane: De Bruyne spilar kynþokkafullan fótbolta
Mynd: EPA

Roy Keane var sérfræðingur hjá ITV sem sýndi leik Bristol City og Manchester City í enska bikarnum í gær. Hann var hrifinn af leik Man City, svo mikið að hann kallaði leikstílinn kynþokkafullan.


„Ég elska að horfa á hann spila. Það eru litlu hlutirnir sem hann gerir rétt, hvað varðar ákvarðanartökur, sendingar, hann er heimsklassa. Sumt sem hann gerði í kvöld, þetta mark, Grealish gerir vel, sendingin fullkomin og þetta eru algjör gæði. Ég sagði þegar við vorum að horfa 'kynþokkafullur fótbolti," sagði Keane.

Laura Woods stýrði umræðunni en hún átti alls ekki von á því að heyra Keane nota orðið 'kynþokkafullt'.

„Það sem ég hef gaman af er að Kevin de Bruyne fer heim, kveikir á sjónvarpinu og horfir á það helsta úr leiknum og veltir fyrir sér hvernig Roy Keane lýsti þessu, ég held að hann hafi ekki búist við því að þú myndir segja 'kynþokkafullt'," sagði Laura.



Athugasemdir
banner
banner