„Það er búið að vera fínt tempó á æfingum og menn fókuseraðir," segir Heimir Hallgrímsson, þjálfari íslenska landsliðsins. Liðið er við æfingar í Þýskalandi en mun svo ferðast til Úkraínu á morgun í fyrsta leikinn í undankeppni HM sem verður á mánudagskvöld.
En af hverju er æft í Þýskalandi?
En af hverju er æft í Þýskalandi?
„Við höfum það langan tíma til undirbúnings að við vildum vera á öðrum stað en Úkraínu. Við vildum vera á stað sem auðvelt er að komast til og auðvelt að ferðast til Úkraínu. Hér eru einnig toppaðstæður," segir Heimir.
„Eitt af markmiðunum í þessum undirbúningi var að hafa þetta afslappað. Við vorum lengi saman í sumar og vildum ekki hafa þetta of stíft. Ég held að það hafi tekist ágætlega."
Stemning fyrir Shevchenko
Úkraínumenn töpuðu öllum leikjum sínum á EM og urðu þjálfaraskipti eftir mótið.
„Eins og oft áður fyrir okkar leiki mætum við liði sem er með nýjan þjálfara. Við getum ekki annað en undirbúið hlutina miðað við hvað þeir gerðu áður. Við höfum velt því fyrir okkur hverju hann muni breyta. Það er erfitt að undirbúa sig undir leik gegn liðið með nýjan þjálfara. Það góða við okkar leik, svæðisvörnina og annað, er að við þurfum ekki miklu breyta út frá því sem andstæðingurinn gerir, segir Heimir.
Nýr þjálfari Úkraínu er Andriy Shevchenko, fyrrum leikmaður AC Milan og Chelsea. Hann lék á sínum tíma 111 landsleiki fyrir Úkraínu og mörkin voru 48.
„Það er stemning í landinu fyrir þessu nafni. Hann er algjör goðsögn og það verður mikil spenna í leikmönnum og eftirvænting í Úkraínu að sjá hvernig honum gengur."
Ætla að læra af reynslu Hollands
Eftir Evrópumótið í sumar þarf íslenska liðið að komast upp á tærnar.
„Það er oft erfitt að endurræsa sig eftir frábæra lokakeppni og við þurfum ekki að líta lengra en til hollenska liðsins. Eftir frábæra heimsmeistarakeppni þá áttu þeir erfitt með að endurræsa sig og við ætlum að læra af þeirra reynslu og koma tilbúnir í leikinn í Úkraínu," segir Heimir.
Vegna kynþáttafordóma hjá hópi stuðningsmanna Úkraínu í leik á síðasta ári verður leikið fyrir luktum dyrum á mánudag. Engir áhorfendur verða á vellinum, aðeins fjölmiðlamenn og starfsfólk knattspyrnusambandana. Það verða fleiri að horfa á leikinn á Ölveri á mánudag þar sem Tólfan hittist.
„Það verður örugglega betri stemning á Ölveri en á Ólympíuleikvanginum," segir Heimir en Fótbolti.net ræddi við Heimi á æfingasvæðinu í Frankfurt og má sjá viðtalið í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir





















