Camavinga og Bastoni orðaðir við Liverpool - Ruben Neves á óskalista Man Utd - Framtíð Frank í óvissu
Lítur fyrst og fremst á sig sem Norðmann - „Mig langar bara að vinna"
Siggi Lár: Ætla ekki ræða einhver ákvæði í samningnum núna
Valdi Keflavík fram yfir ÍBV - „Þykir rosalega vænt um fólk í Eyjum“
Gummi Magg: Sá fyrir mér öðruvísi endi með uppeldisfélaginu
Fótbolta nördinn - Fótbolti.net vs Fylkir
„Myndi ekki vilja fara aftur upp á geðheilsuna“
17 ára á toppnum í Danmörku - „Finnst ég vera á sama getustigi ef ekki betri“
Ísak Andri tók fund með meisturunum - „Skoða alla möguleika núna í janúar“
Fótbolta nördinn - Draumaliðið vs KR
Kristall Máni: Hef alltaf vitað að fótboltahæfileikarnir hverfa ekki
Jóladagatalið: Stólar fullir af hálfvitum
Jóladagatalið: „Vonandi hefur Gummi Ben eitthvað lært af þessu“
Kominn í grænt eftir eitt tímabil í Svíþjóð - „Eftir það tók ég ákvörðun um að fara annað“
Ætlaði ekki að koma heim - „Þegar ég talaði við Óskar lá þetta fyrir“
Jóladagatalið: Kristján Óli eftir að hafa skorað ljótasta markið á ferlinum
Jóladagatalið: Auðunn Blöndal og Gaui Þórðar í geitungavandræðum
Ísak bendir á augljóst vandamál: Erum ekki nógu góðir þar
Jóladagatalið: Allir á þjóðhátið, það er skylda hjá mér!
Æfingaleikur: Aron Kristófer skoraði frá miðju gegn Leikni
Jóladagatalið: Þið vitið aldrei neitt um okkur
   fim 03. júní 2021 22:14
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Magnús Már: Strákarnir áttu miklu meira skilið í dag
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, mætti í viðtal eftir 2-2 jafntefli gegn Fjölni í Lengjudeildinni í kvöld. Lið hans var 2-0 yfir þegar 85 mínútur voru liðnar af leiknum.

„Fyrst og fremst áttum við meira skilið. Við vorum frábærir í dag, kannski fyrir utan þessar síðustu fimm mínútur," sagði Magnús Már.

„Baráttan var frábær hjá strákunum, varnarleikurinn frábær og við vorum að spila mjög flottan leik. Strákarnir áttu miklu meira skilið í dag, fannst mér."

Lestu um leikinn: Afturelding 2 -  2 Fjölnir

Afturelding vildi fá víti seint í leiknum gegn Þór í síðustu umferð, en fékk svo víti dæmt á sig undir lokin í dag.

„Fæst orð bera minnsta ábyrgð. Þetta eru stórir dómar og falla ekki okkar megin, en það hlýtur að gera það seinna í sumar þegar þetta jafnast allt saman út. Strákarnir sem voru nálægt þessum vítaspyrnudóm segja að þetta hafi ekki verið víti. Fyrir mér virkaði þetta ekki víti... dómarinn var handviss í sinni sök."

Afturelding er með fimm stig í níunda sæti deildarinnar. Allt viðtalið við Magnús má sjá hér að ofan.
Athugasemdir
banner