Marcus Rashford hefur samþykkt að ganga alfarið til liðs við Barcelona - Darwin Nunez eftirsóttur - Rodri er orðaður við Real Madrid
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
„Viðurkenni að það er erfitt að sjá eftir svona mörgum leikmönnum“
Evrópuævintýri Blika heldur áfram - „Tekur alltaf tíma að koma með nýjar áherslur“
„Segir ekki nei þegar Víkingur vill fá þig“
„Viljum ekki fylla í hópinn bara með hveiti heldur þurfum við einhver krydd“
Gummi Magg: Erum mættir til að skrifa söguna
Böddi um skiptin óvæntu: Var ekki í tilfinningalegu jafnvægi
Arnór Gauti: Mun aldrei gleyma lokaflautinu á Laugardalsvelli
Sameiningaviðræður ÍR og Leiknis: Sumir láta hreinlega tilfinningarnar ráða
Gylfi Tryggva: Höfum sótt einn leikmann innanlands og það var landsliðsmaður
Óskar Smári: Klúbburinn hefur þróast í rétta átt
Markadrottningin komin heim: Voru möguleikar úti en Breiðablik besti kosturinn
   fös 05. ágúst 2016 17:00
Magnús Már Einarsson
Viðtal
Helgi Kolviðs spilaði með Klopp - „Ekki mjög góður í fótbolta"
Helgi Kolviðsson.
Helgi Kolviðsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Helgi Kolviðsson, nýráðinn aðstoðarlandsliðsþjálfari Íslands, þekkir Jurgen Klopp, stjóra Liverpool, mjög vel. Þeir félagar spiluðu saman hjá Mainz í Þýskalandi frá 1998 til 2000.

„Hann var alveg jafn klikkaður sem leikmaður eins og hann er núna sem þjálfari," sagði Helgi léttur í viðtali við Fótbolta.net í dag.

„Hann var froðufellandi og maður skildi hann aldrei í leik. Hann var ekki besti fótboltamaðurinn en hann barðist og hætti aldrei. Hann gat spilað allar stöður og var mjög klókur en hann var ekki mjög góður í fótbolta," sagði Helgi brosandi.

Klopp er ekki að þykjast
Klopp er mjög líflegur og látbragð hans á hliðarlínunni vekur oft athygli. Helgi segir að Klopp sé ekki að standa í leikþætti, heldur séu tilfinningar hans svona miklar.

„Hann er eins og hann er. Mér finnst mjög mikilvægt hjá þjálfurum að þykjast ekki vera einhver annar og herma eftir öðrum. Hann er ekki að leika neinn. Það er eitt það mikilvægasta sem þú gerir sem þjálfari að vera eins og þú ert. 25-30 leikmenn sjá alveg í gegnum það ef menn eru að reyna að leika eitthvað sem þeir eru ekki," sagði Helgi.

Klopp tók við Liverpool í október í fyrra en hvað telur Helgi að hann geti gert með liðið í vetur?

„Ég heyrði af því að hann ætlaði að æfa aðeins meira núna en menn eru vanir. Það er þýskur agi í því. Hann hefur alltaf skilað liðum í toppstand og þau hafa geta spilað þann bolta sem hann vill spila. Ef hann kemur því í gegn og lendir ekki mikið í meiðslum þá gæti liðið náð langt."

Lærðu af þjálfara sem var á undan sinni samtíð
Helgi og Klopp eru á meðal átta leikmanna Mainz á sínum tíma sem hafa farið út í þjálfun. Jürgen Kramny stýrði til að mynda Stuttgart í þýsku Bundesligunni í fyrra og Torsten Lieberknecht er í dag þjálfari Braunschweig í þýsku B-deildinni.

Leikmennirnir lærðu allir mikið af Wolfgang Frank sem stýrði Mainz frá 1998 til 2000. Wolfgang lést fyrir þremur árum síðan en hann kom með nýstárlegar þjálfunaraðferðir á sínum tíma.

„Hann var á undan sínum tíma. Hann var mjög skipulagður í taktík. Við vorum í vinnu frá sjö á morgnanna til sjö á kvöldin. Það voru videofundir með VHS. Við notuðum fólk frá háskólanum í Mainz til að leikgreina leiki fyrir okkur. Það var ekki hægt að klippa saman eins og í dag," sagði Helgi.

„Fyrir heimaleiki vorum við tvo daga á hóteli, honum fannst það mjög mikilvægt en það skildi þetta enginn á þessum tíma. Maður lærði rosalega mikið af honum. Hann var endalaust að gefa okkur upplýsingar og menn voru stanslaust að bæta sig. Ég á ennþá þykka bók sem hann gaf mér. Þegar maður var ungur leikmaður fannst manni þetta vera of mikið en við eigum allir þessar bækur og við erum eiginlega allir að gera það sama í dag í þjálfuninni."

Helgi verður í ítarlegu viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu á 97,7 á morgun milli 12 og 14.

Sjá einnig:
Helgi Kolviðs: Mikilvægt að við tökum næsta skref
Athugasemdir
banner
banner