„Það var ekki mikið í gangi í þessum leik en þetta var verðskuldaður sigur," sagði Hjörtur Hermannsson í viðtali við heimasíðu KSÍ um 1-0 sigur U21 árs landsliðsins gegn Norður-Írlandi á föstudag.
„Bæði lið vildu ekki mikið vera með boltann. Þetta var eins og handboltaleikur. Ákveðnir leikmenn voru stimplaðir út á meðan aðrir áttu að vera með boltann."
„Bæði lið vildu ekki mikið vera með boltann. Þetta var eins og handboltaleikur. Ákveðnir leikmenn voru stimplaðir út á meðan aðrir áttu að vera með boltann."
U21 árs liðið mætir Frökkum á morgun í mikilvægum leik í toppbaráttu riðilsins. Ísland er á toppnum og á leik til góða á Frakka og Makedóna sem eru líka í baráttunni. Ísland getur eyðilagt vonir Frakka um 1. sætið með sigri á morgun.
„Frakkarnir eru með hörkugott lið. Við höfum náð í frábær úrslit gegn þeim í gegnum tíðina. Persónulega hef ég aldrei tapað gegn þeim og ég held að enginn í þessum hóp hefur gert það."
„Við tókum þá á heimavelli í þessari keppni og sóttum gríðarlega mikilvægt stig í síðustu keppni. Við förum til að taka þrjú stig en við myndum fara sáttir heim með eitt stig."
„Þeir verða að vinna leikinn. Þeir eru með bakið upp við vegg eftir tapið í Úkraínu. Við erum í bílstjórasætinu með leik til góða. Við endum á tveimur leikjum í október og þetta er í okkar höndum."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |
Athugasemdir























