Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 06. mars 2023 09:30
Brynjar Ingi Erluson
De Gea: Þetta var hörmulegt
Mynd: EPA
David De Gea, markvörður Manchester United, sá sig tilneyddan til þess að senda frá sér nokkur orð eftir 7-0 tapið gegn Liverpool á Anfield í gær.

De Gea átti ömurlegan dag á Anfield en hann hleypti inn sjö mörkum og átti að gera betur í að minnsta kosti tveimur mörkum sem liðið fékk á sig.

Spænski markvörðurinn las ekki alveg stemninguna eftir leikinn en það var ekki tekið neitt sérstaklega vel í þessi skilaboð sem hann sendi frá sér á samfélagsmiðlum, enda ekki vel séð að koma með slík skilaboð eftir niðurlægingu eins og þessa.

„Ég veit að svona skilaboð falla ekki í kramið á svona degi. Þetta var hörmulegt augnablik fyrir okkur og þessi úrslit er eitthvað sem á ekki að gerast, sérstaklega miðað við vegferðina sem við erum á. Við höfum skyldur hjá þessu félagi og á okkar ábyrgð að vera fulltrúar merkisins, en við höfum mörg tækifæri til að horfa fram veginn. Það er mikið af leikjum á næstunni og við verðum að setja alla einbeitingu á þá leiki,“ sagði De Gea á samfélagsmiðlum.


Athugasemdir
banner
banner