Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   lau 08. júní 2019 16:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gylfi: Höfum spilað stærri leiki en þetta
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var mjög sætt. Skyldusigur og ágætis frammistaða. Við gerðum það sem við þurftum að gera," sagði Gylfi Þór Sigurðsson eftir 1-0 sigur á Albaníu í undankeppni EM í dag.

Lestu um leikinn: Ísland 1 -  0 Albanía

Gylfi var frábær í leiknum og fór fyrir sínu liði.

„Við vorum ekki upp á okkar besta sóknarlega. Völlurinn var mjög þurr. Það hægði á spilinu. Vörnin var fín og þeir sköpuðu sér ekki mjög mikið. Þetta var jafn leikur. Viljinn hjá okkur var það sem skildi að."

„Við höfum spilað stærri leiki en þetta, en auðvitað var þetta skyldusigur. Næsti leikur er eins, við verðum að vinna þessa tvo heimavelli. Það er eins og í síðustu undankeppnum, þú þarft að vera sterkur á heimavelli."

„Við erum flestir á besta aldri, fyrir utan Kára," sagði Gylfi léttur. „Við erum í kringum 28, 29, þrítugt. Við erum í mjög góðu standi. Hungrið er alltaf til staðar í þessu liði. Við höfum upplifað frábæra tíma síðustu fimm, sex ár. Stemningin að fara á stórmót, það er nóg að upplifa það einu sinni þá viltu fara aftur."

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner