Amorim með áhugaverða klásúlu - Man City sýnir Mainoo áhuga - Juve vill Silva - Liverpool gæti gert tilboð í Araujo
Venni: Get ekkert farið að sparka í ruslatunnur eða urðað yfir menn
Hemmi hafði ekki tíma í að einbeita sér að leiknum - „Það voru allir að biðja um skiptingu"
Liam Daði: Við stefnum á Laugardalsvöll og það er ekkert flókið
Karl Ágúst talar um hátt spennustig - „Allt undir á sunnudaginn"
Haraldur Freyr: Það er bara hálfleikur í þessu
Gunnar Heiðar um rauða spjald Diouck: Leiðinlegt að þurfa að fara í einhvern svona leik
Magnús Már: Það er gjörsamlega óásættanlegt
Viktor Jóns: Tók eftir því strax í vetur hvað býr í þessum gæja
Damir: Það er enginn skjálfti
Láki: Þetta réðst ekki hér
Lárus Orri kjarnyrtur „Berjast fyrir þessu og fara í svolítið fuck you mode"
Dóri Árna: Það er alveg rétt að stigasöfnun hefur verið rýr í síðustu deildarleikjum
Breki Baxter: FH leikurinn situr núna í okkur
Gummi Kristjáns léttur: Er að spila alltof aftarlega á vellinum
Túfa hefur ekki áhyggjur - „Alvöru menn taka mótlætið á kassann“
„Ekkert að rífa okkur upp til skýja fyrir að vinna Val hérna“
Valdimar Þór: Þurftum ekkert að elta þá út um allt
Sölvi eftir stórsigur á Meistaravöllum: Líst mjög vel á þetta gras hér í KR
Óskar Hrafn hugar að breytingum: Egó þjálfarans getur ekki verið að þvælast fyrir árangri liðsins
Davíð Smári: Ósáttur með að við skulum gleyma fyrir hvað við stöndum
   sun 08. september 2019 17:00
Brynjar Ingi Erluson
Gunnar Magnús: Staðan er svört
Kvenaboltinn
Gunnar Magnús Jónsson
Gunnar Magnús Jónsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gunnar Magnús Jónsson, þjálfari Keflavíkur, var ósáttur með úrslitin gegn Stjörnunni í dag en liðið tapaði 4-1.

Lestu um leikinn: Stjarnan 4 -  1 Keflavík

Keflavík komst yfir í leiknum með marki frá Maired Clare Fulton og var staðan því 1-0 þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks en Stjarnan mætti af krafti inn í síðari hálfleikinn og skoraði fjögur mörk.

„Svo sannarlega. Þær refsuðu okkur og við náðum ekki að refsa þeim í fyrri hálfleik. Við nýttum færin illa og þetta var leikur tveggja gjörólíkra hálfleika," sagði Gunnar.

„Það gerist eitthvað í seinni hálfleik hjá okkur. Stjörnustelpur komu grimmar og við vorum ekki tilbúnar að taka á móti því. Við brotnuðum í dag en sigurinn er frekar stór miðað við færi og þær voru öflugar í seinni hálfleiknum og refsuðu okkur illa."

Keflavík er í slæmri stöðu en liðið er í 9. sæti með 12 stig þegar tvær umferðir eru eftir. Tveimur stigum á eftir ÍBV.

„Þetta verður erfiðara og erfiðara ef við náum ekki að safna stigum í púkkin. Staðan er svört. Við eigum eftir HK/Víking heima og svo Val úti og eins og Valsstelpurnar eru að spila þá eru engin lið að eiga í þær en ef ég tala í hreinskilni þá erum við í slæmri stöðu."

„Við þurfum að treysta meira á sjálfa okkur og ná í einhver stig úr þessum leikjum og við þurfum að byrja á að gera það á móti HK/Víking og sjá hvert það fleytir okkur,"
sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner