Amorim gæti stigið frá borði ef slæmt gengi Man Utd heldur áfram - Bayern ætlar ekki að bjóða Sane hærri samning
   fim 09. mars 2023 08:40
Ívan Guðjón Baldursson
Skotmark Arsenal og Man Utd kostar 40 milljónir evra
Mynd: EPA

Manchester United og Arsenal hafa verið orðuð við spænska miðjumanninn Gabri Veiga, sem er lykilmaður í liði Celta Vigo.


Veiga, sem á 21 árs afmæli síðar í mars, er kominn með 8 mörk og 3 stoðsendingar í 23 deildarleikjum það sem af er tímabils.

Veiga er sóknarsinnaður miðjumaður og á sjö leiki að baki fyrir yngri landslið Spánar, þó aðeins einn fyrir U21 liðið.

Það er 40 milljón evra söluákvæði í samningi hans og greinir Fabrizio Romano frá því að miðjumaðurinn verði ekki seldur fyrir minna heldur en þá upphæð.

Veiga er samningsbundinn Celta til 2026 og á 42 leiki að baki fyrir félagið.

Celta er aðeins búið að skora 26 mörk í 24 leikjum það sem af er tímabils í spænsku deildinni og hefur Veiga átt beinan þátt í tæplega helmingnum.

Veiga gæti veitt samkeppni um stöður á miðjunni og aukið breiddina hjá Man Utd eða Arsenal, en fleiri félög eru einnig að fylgjast með honum.


Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 35 26 4 5 95 36 +59 82
2 Real Madrid 35 23 6 6 72 37 +35 75
3 Atletico Madrid 35 20 10 5 60 27 +33 70
4 Athletic 35 17 13 5 51 26 +25 64
5 Villarreal 35 17 10 8 61 47 +14 61
6 Betis 35 16 10 9 53 43 +10 58
7 Celta 35 14 7 14 55 54 +1 49
8 Vallecano 35 12 11 12 37 42 -5 47
9 Mallorca 35 13 8 14 33 40 -7 47
10 Osasuna 35 10 15 10 43 51 -8 45
11 Valencia 35 11 12 12 43 51 -8 45
12 Real Sociedad 35 12 7 16 32 41 -9 43
13 Getafe 35 10 9 16 31 34 -3 39
14 Espanyol 35 10 9 16 38 47 -9 39
15 Sevilla 35 9 11 15 39 49 -10 38
16 Girona 35 10 8 17 41 53 -12 38
17 Alaves 35 8 11 16 35 47 -12 35
18 Leganes 35 7 13 15 35 53 -18 34
19 Las Palmas 35 8 8 19 40 57 -17 32
20 Valladolid 35 4 4 27 26 85 -59 16
Athugasemdir
banner
banner