Wout Weghorst framherji Manchester United hefur fengið mikla gagnrýni fyrir frammistöðu sína með liðinu á þessari leiktíð. Hann skoraði aðeins sitt annað mark fyrir félagið í kvöld.
Þessi hollenski sóknarmaður er á láni frá Burnley en hann var að spila sinn 15. leik fyrir United í kvöld þegar liðið tók á móti Real Betis í Evrópudeildinni.
Fyrri hálfleikur var ekki góður hjá United en liðið skoraði þrjú mörk í þeim síðari og vann að lokum 4-1. Weghorst skoraði síðasta mark leiksins.
Það var ljóst í fagnaðarlátunum að þetta hafði mikla þýðingu fyrir stóra framherjan en hann virtist hreinlega brotna niður.
Look at what it means for Wout Weghorst ???? pic.twitter.com/1Au435Vpif
— United Zone (@ManUnitedZone_) March 9, 2023
Leave a like for Wout Weghorst ?? pic.twitter.com/sNPqrRQOaD
— Morgan (@utdscope) March 9, 2023
Athugasemdir