Marcus Rashford hefur samþykkt að ganga alfarið til liðs við Barcelona - Darwin Nunez eftirsóttur - Rodri er orðaður við Real Madrid
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
„Viðurkenni að það er erfitt að sjá eftir svona mörgum leikmönnum“
Evrópuævintýri Blika heldur áfram - „Tekur alltaf tíma að koma með nýjar áherslur“
„Segir ekki nei þegar Víkingur vill fá þig“
„Viljum ekki fylla í hópinn bara með hveiti heldur þurfum við einhver krydd“
Gummi Magg: Erum mættir til að skrifa söguna
Böddi um skiptin óvæntu: Var ekki í tilfinningalegu jafnvægi
Arnór Gauti: Mun aldrei gleyma lokaflautinu á Laugardalsvelli
Sameiningaviðræður ÍR og Leiknis: Sumir láta hreinlega tilfinningarnar ráða
Gylfi Tryggva: Höfum sótt einn leikmann innanlands og það var landsliðsmaður
Óskar Smári: Klúbburinn hefur þróast í rétta átt
Markadrottningin komin heim: Voru möguleikar úti en Breiðablik besti kosturinn
   sun 11. september 2016 19:09
Elvar Geir Magnússon
Kaplakrika
Böddi löpp: Skal koma með alvöru hrokaviðtal
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Böðvar Böðvarsson var maður leiksins þegar FH gerði 1-1 jafntefli gegn Breiðabliki í Pepsi-deildinni í kvöld. Með jafnteflinu komst FH enn nær því markmið að landa titlinum.

Lestu um leikinn: FH 1 -  1 Breiðablik

Er hægt að byrja að óska FH-ingum til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn?

„Þú getur alveg reynt að veiða mig í það en ég er með ströng fyrirmæli fyrir viðtalið. Svo ég ætla að spara yfirlýsingarnar," segir Böddi léttur.

„Ég held að stigið sé betra fyrir okkur en þá. Við fórum í leikinn vitandi það. Leikskipulagið snérist um að vinna leikinn en við vorum svo ógeðslega lélegir í fyrri hálfleik að ég held að við getum farið sáttir með stigið."

Hann lagði upp mark FH fyrir vin sinn Kristján Flóka Finnbogason.

„Ég var ágætlega sáttur með minn leik í dag. Ég náði stoðsendingu á minn mann. Miðað við söguna held ég að Flóka hafi þótt sérstaklega gaman að skora. Þetta var mikilvægt mark og ég er ánægður fyrir hans hönd."

Böddi vill ekki vera með neinar yfirlýsingar strax.

„Ég skal koma með alvöru hrokaviðtal við þig þegar þetta er komið í höfn."
Athugasemdir
banner
banner
banner