Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 13. mars 2023 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tottenham skoðar að skipta út heimsmeistara fyrir heimsmeistara
Emiliano Martínez.
Emiliano Martínez.
Mynd: EPA
Tottenham er sagt undirbúa tilboð í heimsmeistarann Emiliano Martinez, sem er á mála hjá Aston Villa.

Það styttist í að hanskarnir fari upp á hillu hjá Hugo Lloris, sem er 36 ára gamall, en hann á aðeins rúmlega ár eftir af samningi sínum við Tottenham. Lloris á heimsmeistaratitil á ferilskrá sinni, líkt og Martinez.

Spurs er farið að skoða markvarðarmálin hjá sér og samkvæmt TyC Sports þá hefur félagið á Martinez. Gæti farið svo að Tottenham geri tilboð í hann á næstu vikum.

Martinez er með samning við Aston Villa til 2027 en honum dreymir um að spila í Meistaradeildinni og það er mögulega eitthvað sem Tottenham getur boðið honum upp á.

Tottenham er sem stendur í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar á meðan Aston Villa siglir lygnan sjó.
Athugasemdir
banner
banner