Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 13. mars 2023 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Zinchenko söng um Arteta með stuðningsmönnunum
Mynd: EPA

Arsenal vann Fulham 3-0 um helgina og heldur því fimm stiga forystu á Manchester City á toppi ensku úrvalsdeildarinnar.


Leandro Trossard var frábær í leiknum en hann lagði upp öll mörkin í fyrri hálfleik.

Oleksander Zinchenko gekk til liðs við Arsenal frá City fyrir tímabilið en Arsenal deildi skemmtilegu myndbandi af leikmanninum eftir leik helgarinnar.

Þar sást hann syngja með stuðningsmönnum liðsins m.a. um Mikel Arteta stóra liðsins. Zinchenko hefur opinberað það að hann hafi verið mikill stuðningsmaður Arsenal í æsku.


Athugasemdir
banner
banner
banner