„Afar sterk liðsheild, Stefán Logi var frábær í markinu og við héldum haus allan tíman sem lið," sagði Willum Þór Þórsson, þjálfari KR um hvað hafði skilað þrem stigum í hús er liðið vann Stjörnuna í kvöld.
KR vann 3-1 með mörkum frá Finni Orra Margeirssyni, Kennie Chopart og Óskari Erni Haukssyni. Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, sagði sitt lið hafa verið töluvert betri aðilinn en Willum var ekki endilega sammála því.

Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 3 KR
„Þú verður að gera eitthvað skipulega með knöttinn ef þú ætlar að tala um að þú sért mikið betri aðilinn. Það er ekki nóg að kýla honum bara inn í teig."
Hann segist temmilega bjartsýnn á að KR geti náð Evrópusæti.
„Ef við höldum rónni og höldum áfram að vera þéttir sem lið og ná okkur besta fram í næsta leik, getum við gert síðasta þriðjunginn í þessu móti áhugaverðan," sagði Willum.
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir