„Það er geggjuð tilfinning að fagna þessu hérna, það kom svo mikil orka frá stúkunni. Það er gaman að hafa klárað þetta almennilega og sannfærandi," sagði Glódís Perla Viggósdóttir, varnarmaður íslenska landsliðsins, eftir sigurinn gegn Slóvenum í kvöld. Fyrir leikinn var líka ljóst að Ísland væri komið á EM.
Lestu um leikinn: Ísland 4 - 0 Slóvenía
„Þetta var upp og niður hjá okkur. Við áttum mjög góða kafla í kvöld en svo áttum við kafla sem voru ekki eins góðir. Við kláruðum þetta samt sannfærandi og það er jákvætt."
Stelpurnar ætla ekki að slaka á þó EM sætið sé í höfn. „Lokamarkmiðið er enn eftir en það er að klára riðilinn með fullt hús stiga og hreinu laki. Það verður aðalmarkmiðið á þriðjudaginn."
Hún segir afar gaman að það sé ekki búið að skora hjá liðinu í undankeppninni. „Það er frábær tilfinning og allt liðið á hrós skilið fyrir skipulag og vinnuframlag. Það eru allar tilbúnar og að vinna fyrir hvor aðra."
En var það skrítið að vita fyrir leik að EM sætið væri í höfn? „Ég segi nú ekki skrítið en það breytti því svolítið hvernig leikurinn var andlega séð. Við þurftum að stíla inn á að gera þetta fyrir okkur sjálfar."
Þá segist Glódís hafa verið farin að hugsa um mótið í Hollandi fyrir þónokkru síðan. "Við erum búnar að láta okkur dreyma um að komast til Hollands frá því áður en undankeppnin byrjaði því það hefur verið markmiðið að komast þangað frá fyrsta leik. ÞAð er gaman að geta sagst vera að fara til Hollands.
Athugasemdir























