Real Madrid sýnir Mac Allister áhuga - Greenwood eftirsóttur - Mourinho til Tyrklands? - Slot vill fá Silva
   mið 16. desember 2020 22:49
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Dómarar leyfa Klopp að haga sér svona"
Klopp og Mourinho eftir leikinn.
Klopp og Mourinho eftir leikinn.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Tottenham, var ekki mjög sáttur við kollega sinn, Jurgen Klopp, í kvöld.

Tottenham tapaði 2-1 á útivelli gegn Englandsmeisturum Liverpool. Mourinho sagði eftir leikinn að betra liðið hefði tapað en Roberto Firmino skoraði sigurmark Liverpool seint í leiknum. Liverpool var heilt yfir mun sterkari aðilinn þó Tottenham hafi skapað sér færi í seinni hálfleiknum.

Mourinho gagnrýndi það hvernig Klopp hegðaði sér á hliðarlínunni í fleira en einu viðtali í kvöld.

„Dómarar leyfa honum (Klopp) að haga sér svona. Það er ekki mitt vandamál. Ég er leiður út af því að ég fæ ekki að haga mér svona," sagði Mourinho án þess að útskýra nánar hvað hann væri að tala um.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner