Bjarni Jóhannsson var svekktur eftir naumt tap ÍBV fyrir Fylki á heimavelli í dag.
Lestu um leikinn: ÍBV 1 - 2 Fylkir
„Við mættum ekki alveg nógu vel inn í leikinn en eftir markið brugðumst við vel við og við náðum að jafna leikinn en við gerum einum fleiri mistök en þeir og það kostar okkur mark," sagði Bjarni.
Leikurinn var jafn framan af en samt vantaði mikið í leik ÍBV. Aðspurður hvort tap í bikarúrslitum væri ennþá að há þeim kvað Bjarni ekki svo vera.
„Það virkaði nú ekki þannig á mig, maður veit aldrei en byrjunin var svolítið þunglamaleg áður en við náðum að vinna okkur aftur inn í leikinn."
ÍBV er nú einungis fjórum stigum frá fallsæti og Bjarni viðurkennir að þeir eru í bullandi fallbaráttu.
„Já, við erum að sogast allverulega niður í þessa baráttu og þess vegna var mjög slæmt að tapa í dag," sagði Bjarni að lokum.
Athugasemdir






















