Real Madrid sýnir Mac Allister áhuga - Greenwood eftirsóttur - Mourinho til Tyrklands? - Slot vill fá Silva
banner
   lau 19. desember 2020 19:56
Victor Pálsson
Klopp um ummæli Salah: Hef ekkert að segja
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, var í kvöld spurður út í ummælin sem Mohamed Salah lét falla fyrir helgi varðandi eigin framtíð.

Salah ræddi við spænska blaðið AS og gaf þar í skyn að hann væri áhugasamur um að semja við Real Madrid eða Barcelona í framtíðinni.

Salah talaði vel um spænsku risana en sagðist einnig aðeins vera einbeittur að því að vinna titla á þessu tímabili með Liverpool.

Egyptinn kom inná í 7-0 sigri Liverpool á Crystal Palace í dag og skoraði tvö mörk undir lok leiksins.

Klopp vildi ekki mikið segja um ummæli Salah en þau virðast ekki fara í taugarnar á Þjóðverjanum.

„Mo spilaði síðustu fjóra leikina þegar dagskráin er stíf," sagði Klopp eftir sigurinn.

„Að setja hann inná í seinni hálfleik var góð ákvörðun, það er allt saman. Ég hef ekkert að segja um þetta viðtal. Það er allt í lagi frá mínu sjónarhorni."
Athugasemdir
banner
banner
banner