Real Madrid sýnir Mac Allister áhuga - Greenwood eftirsóttur - Mourinho til Tyrklands? - Slot vill fá Silva
   lau 19. desember 2020 20:23
Victor Pálsson
Özil sár eftir tapið í kvöld
Mynd: Getty Images
Mesut Özil, leikmaður Arsenal, fær ekkert að spila með liðinu þessa dagana eins og flestir vita en hann er ekki í leikmannahópi liðsins í úrvalsdeildinni.

Margir kalla eftir því að Özil fái sénsinn á nýju ári en gengi Arsenal hefur vægast sagt verið lélegt á þessu tímabili.

Liðið tapaði 2-1 gegn Everton á útivelli í dag og er í 15. sæti deildarinnar með aðeins 14 stig eftir 14 leiki.

Eftir tapleikinn í kvöld setti Özil inn athyglisverða færslu en þar gefur hann til kynna að hann sé ansi sár eftir að hafa horft á viðureignina.

Özil er mjög skapandi miðjumaður en það er mögulega það sem vantar í sóknarleik Mikel Arteta.

Óvíst er hvort það sé ákvörðun Arteta að nota Özil ekki en hann gæti vel verið á förum frá félaginu á næsta ári.

Özil setti inn brotið hjarta á Twitter-síðu sína í kvöld eins og má sjá hér.



Athugasemdir
banner
banner