Marcus Rashford hefur samþykkt að ganga alfarið til liðs við Barcelona - Darwin Nunez eftirsóttur - Rodri er orðaður við Real Madrid
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
„Viðurkenni að það er erfitt að sjá eftir svona mörgum leikmönnum“
Evrópuævintýri Blika heldur áfram - „Tekur alltaf tíma að koma með nýjar áherslur“
„Segir ekki nei þegar Víkingur vill fá þig“
„Viljum ekki fylla í hópinn bara með hveiti heldur þurfum við einhver krydd“
Gummi Magg: Erum mættir til að skrifa söguna
Böddi um skiptin óvæntu: Var ekki í tilfinningalegu jafnvægi
Arnór Gauti: Mun aldrei gleyma lokaflautinu á Laugardalsvelli
Sameiningaviðræður ÍR og Leiknis: Sumir láta hreinlega tilfinningarnar ráða
Gylfi Tryggva: Höfum sótt einn leikmann innanlands og það var landsliðsmaður
Óskar Smári: Klúbburinn hefur þróast í rétta átt
Markadrottningin komin heim: Voru möguleikar úti en Breiðablik besti kosturinn
   sun 21. ágúst 2016 20:54
Arnar Geir Halldórsson
Egill: Allir rosalega góðir vinir
Egill Jónsson
Egill Jónsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Egill Jónsson hafði í nógu að snúast á miðju Víkings Ólafsvíkur þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Fjölni í Pepsi deild karla í kvöld.

„Þetta var hörkuleikur frá A-Ö og mikil barátta hjá báðum liðum. Það er sjaldan sem maður er ósáttur með eitt stig eftir að hafa verið einum færri í sextíu mínútur en miðað við hvernig þetta spilaðist hefði verið fínt að taka þrjú stig. Maður er bara stoltur af liðinu og baráttunni í dag," segir Egill.

Emir Dokara fékk beint rautt spjald undir lok fyrri hálfleiks og var Egill ekki sáttur með þann dóm.

„Ég sá þetta nokkuð vel og mér finnst Emir bara vera að hugsa um boltann. Þetta er bara návígi um lausan bolta og ég get ekki séð hvernig þetta er rautt spjald. Ég þarf samt að horfa á þetta aftur."

Ólafsvíkingum hafði gengið afar illa þegar kom að leiknum í kvöld og hafa þeir að undanförnu sogast niður í fallbaráttu. Egill segir liðið gera sér grein fyrir því hvað þarf til að halda liðinu uppi.

„Við erum allir rosalega góðir vinir hérna, innan sem utan vallar. Við töluðum saman og við viljum leggjast á eitt og ætlum að berjast fyrir þessu. Þetta snýst ekki um einhvern flottan fótbolta heldur að berjast fyrir hvern annan," segir Egill.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Athugasemdir
banner
banner