Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   mán 27. febrúar 2023 10:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Margir ráku upp stór augu þegar Jones sást í útsendingu fyrir leik
Phil Jones.
Phil Jones.
Mynd: EPA
Varnarmaðurinn Phil Jones var ekki í leikmannahópi Manchester United þegar liðið vann 2-0 sigur gegn Newcastle í úrslitaleik enska deildabikarsins í gær.

Eins og svo oft áður þá er Jones að glíma við meiðsli.

Hann var ekki hluti af hópnum og var þess í stað hluti af teymi Sky Sports í útsendingunni frá leiknum.

Jones hefur ekki spilað í tíu mánuði og ráku margir upp stór augu þegar hann sást við hlið Gary Neville í útsendingunni frá leiknum í gær. Hann er þó ekki hættur í fótbolta og vonast enn til að koma ferlinum aftur af stað.

„Ég er að gera allt sem ég get til þess að komast aftur út á völl," sagði hinn 31 árs gamli Jones í gær. „Það hefur verið erfitt að takast á við allt þetta meiðslavesen. Félagið hefur gert frábærlega fyrir mig og ég er þakklátur fyrir stuðninginn."

Jones er sagður fá um 100 þúsund pund í vikulaun hjá Man Utd en hann er samningsbundinn félaginu út þetta tímabil.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner