Amorim gæti stigið frá borði ef slæmt gengi Man Utd heldur áfram - Bayern ætlar ekki að bjóða Sane hærri samning
   mán 27. febrúar 2023 12:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Martial bað um mynd af sér með læknateyminu
Franski sóknarmaðurinn var ekki með Manchester United gegn Newcastle í úrslitaleik enska deildabikarsins í gær. United vann leikinn 2-0.

Martial hefur verið mikið á meiðslalistanum á þessu tímabili og hefur lítið getað beitt sér.

Þrátt fyrir að spila ekki í leiknum þá tók Martial þátt í fögnuðinum með liðinu eftir leik.

Martial henti í góða mynd með bikarinn eftir leikinn ásamt læknateyminu sem hefur hugsað vel um hann síðustu mánuði. Hann hefur eytt miklum tíma með þessum mönnum upp á síðkastið.

Hægt er að sjá myndina hér fyrir neðan, en það er talið að Martial eigi ekki mikla framtíð hjá félaginu. United er sagt hafa áhuga á því að selja Martial í sumar.


Athugasemdir
banner