Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 27. febrúar 2023 20:38
Ívan Guðjón Baldursson
Martínez og Earps bestu markverðirnir
Emiliano Martínez með verðlaun sín.
Emiliano Martínez með verðlaun sín.
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Árleg verðlaunaafhending FIFA er í gangi þessa stundina þar sem besta fótboltafólk heims er verðlaunað fyrir árangur sinn í íþróttinni síðasta árið.

Búið er að tilkynna bestu markverði í karla- og kvennaflokki og eru það landsliðsmarkverðir Argentínu og Englands.

Emiliano Martínez, markvörður Aston Villa og argentínska landsliðsins, vann heimsmeistaramótið í Katar og átti nokkrar afar mikilvægar vörslur á leiðinni í úrslitaleikinn.

Hann var valinn sem besti leikmaður mótsins og stóð sig einstaklega vel í vítaspyrnukeppnum gegn Hollandi og Frakklandi.

Mary Earps, markvörður Manchester United og enska landsliðsins, átti frábært mót er England varð Evrópumeistari á heimavelli í fyrra.

Kvennalið Englands vann þar með sitt fyrsta stórmót og var Earps valin í lið mótsins.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner