Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 28. febrúar 2023 21:21
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Felix: Stuðningsmenn Atletico sungu aldrei um mig
Mynd: EPA

Joao Felix er ánægður með lífið í London en hann gekk til liðs við Chelsea frá Atletico Madrid á láni í janúar.


Hann hefur leikið fimm leiki fyrir félagið og skorað eitt mark.

Hann tjáði sig um stuðninginn sem hann hefur fengið hjá stuðningsfólki Chelsea.

„Ég var hjá Atletico í þrjú ár og það var ekkert lag um mig. Hérna hjá Chelsea var ég kominn með lag eftir einn leik. Stuðningsmennirnir eru með lag fyrir nánast alla leikmenn, það er fyndið," sagði Felix.


Athugasemdir
banner
banner