Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 28. febrúar 2023 14:30
Elvar Geir Magnússon
Konate og Nunez mögulega með á morgun
Darwin Nunez.
Darwin Nunez.
Mynd: EPA
Jurgen Klopp segir að Ibrahima Konate og Darwin Nunez eigi báðir möguleika á að snúa aftur og vera í hópnum hjá Liverpool sem mætir Úlfunum í ensku úrvalsdeildinni annað kvöld.

Joe Gomez er frá vegna vöðvameiðsla og leikurinn kemur of snemma fyrir Luis Díaz sem nálgast endurkomu en er ekki mættur til æfinga með liðinu.

Diogo Jota mætti á dögunum aftur af meiðslalistanum og mætir sínu fyrrum félagi.

„Það er frábært að fá hann til baka og hann er að finna taktinn á ný, hann var þreyttur eftir síðasta leik og það er óákveðið hvort hann byrji en hann mun klárlega koma við sögu. Það hjálpar okkur mikið í komandi leikjatörn að hann sé kominn aftur og hann getur spilað allar stöðurnar fremst," segir Klopp.

Af liði Wolves er það að frétta að Matheus Cunha er tæpur. Brasilíumaðurinn meiddist á ökkla en meiðslin eru ekki alvarleg.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner