Fjórir fyrstu leikirnir í 16 liða úrslitum enska bikarsins eru í fullum gangi þessa stundina.
Það er ný búið að flauta til loka fyrri hálfleiks í úrvalsdeildarslagnum milli Fulham og Leeds þar sem heimamenn í Fulham eru marki yfir.
Það var Joao Palhinha sem skoraði markið eftir rúmlega hálftíma leik.
Tyler Adams átti misheppnaða sendingu á miðjum vellinum sem Palhinha komst inn í og hann var fljótur að hugsa, tók skotið af löngu færi og nappaði Illan Meslier illa staðsettann í rammanum.
Boltinn hafnaði í stöngina og inn, virkilega vel gert hjá brasilíska miðjumanninum. Markið má sjá með því að smella hér.
Síðari hálfleikur er ný hafinn í leik Leicester og Blackburn þar sem Blackburn er marki yfir. Brighton er að vinna Stoke og Man City er marki yfir gegn Bristol City.