Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 28. febrúar 2023 11:08
Elvar Geir Magnússon
Thiago Silva með sködduð liðbönd í hné
Ekki hefur verið gefið út hversu lengi er búist við því að Silva verði frá en talað er um fimm til sex vikur.
Ekki hefur verið gefið út hversu lengi er búist við því að Silva verði frá en talað er um fimm til sex vikur.
Mynd: EPA
Chelsea hefur tilkynnt að miðvörðurinn reynslumikli Thiago Silva hafi skaddað liðbönd í hné.

Brasilíumaðurinn meiddist í fyrri hálfleik í tapinu gegn Tottenham á sunnudaginn, eftir að Harry Kane lenti ofan á honum, og fór í kjölfarið í skoðun.

„Niðurstöðurnar eru þær að skemmdir urðu á liðböndum Thiago í hné og hann mun nú vinna náið með læknadeild félagsins meðan á endurhæfingu stendur. Stefnan er að hann snúi aftur eins fljótt og hægt er," segir í fréttatilkynningu Chelsea.

Þetta eru afskaplega slæmar fréttir fyrir Chelsea og Graham Potter. Hinn 38 ára gamli Silva hefur verið einn besti leikmaður liðsins á tímabilinu.

Ekki hefur verið gefið út hversu lengi er búist við því að Silva verði frá en fjölmiðlar tala um fimm til sex vikur. Chelsea er fjórtán stigum frá topp fjórum og hefur aðeins unnið tvisvar í síðustu fimmtán leikjum í öllum keppnum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner