Mikið ber á milli Man Utd og Roma í viðræðum um Zirkzee - Chelsea hyggst styrkja miðsvæðið og er orðað við Mainoo og Wharton
   fös 28. nóvember 2025 22:07
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Arambarri afgreiddi Elche
Mynd: EPA
Getafe 1 - 0 Elche
1-0 Mauro Arambarri ('56 )

Getafe fékk Elche í heimsókn í eina leik dagsins í spænska boltanum og var staðan markalaus eftir jafnan fyrri hálfleik.

Getafe var sterkara liðið í seinni hálfleik og tók forystuna snemma þegar Mauro Arambarri skoraði eftir undirbúning frá Kiko Femenía, fyrrum leikmanni Watford í ensku úrvalsdeildinni.

Getafe hélt út og urðu lokatölur 1-0. Verðskuldaður sigur fyrir heimamenn.

Getafe er í efri hluta deildarinnar með 20 stig eftir 14 umferðir, aðeins einu stigi frá Evrópusæti. Elche er fjórum stigum þar á eftir.
Athugasemdir
banner