Vinicius Jr færist nær því að vera áfram hjá Real - Liverpool gæti gert janúartilboð í Semenyo
   fös 28. nóvember 2025 21:26
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Gladbach náði í stig gegn Leipzig
Mynd: EPA
M'Gladbach 0 - 0 RB Leipzig

Borussia Mönchengladbach tók á móti RB Leipzig í eina leik kvöldsins í efstu deild þýska boltans.

Gladbach byrjaði tímabilið hörmulega en var með þrjá sigra í röð fyrir leik dagsins gegn Leipzig sem situr í öðru sæti deildarinnar.

Staðan var markalaus eftir tíðindalítinn og jafnan fyrri hálfleik en gestirnir frá Leipzig tóku stjórn á leiknum í síðari hálfleik.

Þeim tókst þó ekki að skora gegn sterkri vörn Gladbach svo niðurstaðan varð markalaust jafntefli.

Leipzig er í öðru sæti með 26 stig eftir 12 umferðir, fimm stigum á eftir toppliði FC Bayern sem á leik til góða.

Gladbach er í neðri hlutanum með 13 stig.
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 11 10 1 0 41 8 +33 31
2 RB Leipzig 12 8 2 2 22 13 +9 26
3 Leverkusen 11 7 2 2 27 15 +12 23
4 Dortmund 11 6 4 1 19 10 +9 22
5 Stuttgart 11 7 1 3 20 15 +5 22
6 Eintracht Frankfurt 11 6 2 3 27 22 +5 20
7 Hoffenheim 11 6 2 3 22 17 +5 20
8 Union Berlin 11 4 3 4 14 17 -3 15
9 Werder 11 4 3 4 15 20 -5 15
10 Köln 11 4 2 5 20 19 +1 14
11 Gladbach 12 3 4 5 16 19 -3 13
12 Freiburg 11 3 4 4 15 20 -5 13
13 Augsburg 11 3 1 7 15 24 -9 10
14 Hamburger 11 2 3 6 9 17 -8 9
15 Wolfsburg 11 2 2 7 13 21 -8 8
16 St. Pauli 11 2 1 8 9 21 -12 7
17 Mainz 11 1 3 7 11 19 -8 6
18 Heidenheim 11 1 2 8 8 26 -18 5
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner