Camavinga og Bastoni orðaðir við Liverpool - Ruben Neves á óskalista Man Utd - Framtíð Frank í óvissu
Lítur fyrst og fremst á sig sem Norðmann - „Mig langar bara að vinna"
Siggi Lár: Ætla ekki ræða einhver ákvæði í samningnum núna
Valdi Keflavík fram yfir ÍBV - „Þykir rosalega vænt um fólk í Eyjum“
Gummi Magg: Sá fyrir mér öðruvísi endi með uppeldisfélaginu
Fótbolta nördinn - Fótbolti.net vs Fylkir
„Myndi ekki vilja fara aftur upp á geðheilsuna“
17 ára á toppnum í Danmörku - „Finnst ég vera á sama getustigi ef ekki betri“
Ísak Andri tók fund með meisturunum - „Skoða alla möguleika núna í janúar“
Fótbolta nördinn - Draumaliðið vs KR
Kristall Máni: Hef alltaf vitað að fótboltahæfileikarnir hverfa ekki
Jóladagatalið: Stólar fullir af hálfvitum
Jóladagatalið: „Vonandi hefur Gummi Ben eitthvað lært af þessu“
Kominn í grænt eftir eitt tímabil í Svíþjóð - „Eftir það tók ég ákvörðun um að fara annað“
Ætlaði ekki að koma heim - „Þegar ég talaði við Óskar lá þetta fyrir“
Jóladagatalið: Kristján Óli eftir að hafa skorað ljótasta markið á ferlinum
Jóladagatalið: Auðunn Blöndal og Gaui Þórðar í geitungavandræðum
Ísak bendir á augljóst vandamál: Erum ekki nógu góðir þar
Jóladagatalið: Allir á þjóðhátið, það er skylda hjá mér!
Æfingaleikur: Aron Kristófer skoraði frá miðju gegn Leikni
Jóladagatalið: Þið vitið aldrei neitt um okkur
   lau 29. maí 2021 16:01
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Laugi Baldurs: Ekki sáttur við uppskeruna, engan veginn
Lengjudeildin
Guðlaugur Baldursson.
Guðlaugur Baldursson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er mjög svekktur, fúll yfir því að tapa leiknum," sagði Guðlaugur Baldursson, þjálfari Þróttar, eftir 2-1 tap gegn Kórdrengjum í Breiðholti í dag.

Staðan var jöfn í leikhléi en Kórdrengir náðu inn sigurmarki í seinni hálfleik.

Lestu um leikinn: Kórdrengir 2 -  1 Þróttur R.

„Mér fannst við fá að stýra leiknum að stórum hluta. Við gerðum það ágætlega á köflum en ég hefði viljað fá aðeins meira flæði í það sem við vorum að gera sóknarlega og aðeins grimmari á síðasta þriðjungi eða í síðustu spyrnunum til að búa til alvöru færi eða alvöru mark."

Þróttarar eru í tíunda sæti með þrjú stig eftir fjóra leiki í Lengjudeildinni.

„Ég er ekki sáttur við uppskeruna, engan veginn. Þessir fjórir leikir í heild sinni, ég er ekki búinn að gera þá alla upp. Sumt er gott og annað getur verið betra. Það er okkar vinna, að reyna að bæta okkur frá leik til leiks og gera betur."

Sjá má allt viðtalið í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner