Sverrir Garðarsson átti frábæran leik í vörninni hjá Haukum sem unnu 2-0 sigur á Tindastóli í 1. umferð 1. deildar í dag.
„Við vissum að þetta yrði erfiður leikur. Við héldum skipulaginu vel og lögðum upp með það fyrir leikinn að halda markinu hreinu og það tókst. Aðrir hlutir máttu kannski betur fara en það kemur bara með sumrinu," sagði Sverrir sem var í meðhöndlun sjúkraþjálfara á meðan Fótbolti.net spjallaði við hann.
Tindastóll kom honum ekki á óvart. „Við vissum að þetta væri lið sem myndi berjast og djöflast. Þeir spiluðu fínan fótbolta og voru duglegir svo þeir komu mér ekkert á óvart."
Sverrir er uppalinn FH-ingur en gekk óvænt í raðir Hauka eftir að hafa fengið félagaskipti í ÍBV í vetur.
„Ég geri mitt besta fyrir félagið. Ég þekki marga hérna. Auðvitað var skrýtið að fara fyrst í Haukatreyjuna eftir að ég hef verið hjá FH síðan ég var fjögurra ára en svona er þetta bara."
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir






















