Heimir Guðjóns var ekki ánægður með aðeins eitt stig eftir 2-2 jafntefli gegn Víkingum.
Lestu um leikinn: FH 2 - 2 Víkingur R.
„Við erum sjálfum okkur verstir. Byrjuðum þennan leik vel. Spiluðum fínt, komumst yfir sanngjarnt og í framhaldinu kemur þetta bíða og sjá „syndrome“ hvað þeir ætla að gera og hvað við ætlum að komast upp með í leiknum, í staðinn fyrir að sýna smá drápseðli og ganga í verkin. Þeir jafna leikinn og svo skorum við aftur og eftir að þeir jafna þá sýnum við smá þunga en ég skil það ekki. Það hlýtur að vera miklu betra að skora eitt og fylgja því eftir í staðinn fyrir að fara alltaf í gang þegar leikirnir eru jafnir eða þegar við erum komnir undir,“ sagði Heimir og hafði engin svör við því af hverju FH nýtir ekki meðbyr sinn betur í leikjunum. „Við erum frábært fótboltalið en það þarf að spila í 90+ mínútur og í mörgum leikjum þá ætlum við alltaf að fara að redda hlutunum á síðustu metrunum og sjá hvað við komumst upp með. Það gengur ekki til lengdar. Þá fáum við ekkert úrslit. Það er ekkert svakalega flókið,“ sagði Heimir.
Pétur Viðarsson var óvænt í byrjunarliði FH í kvöld en þetta var fyrsti byrjunarliðsleikur Péturs á tímabilinu. „Mér fannst Pétur mjög öflugur. Hann kom með inn í liðið það sem við vildum að hann myndi koma með. Hann kom með drifkraft og gaf sig allan í leikinn eins og hans er von og vísa. En auðvitað tekur það lengri tíma fyrir hann að spila sig í form.“
Aðspurður um Evrópudráttinn fyrr í dag svaraði Heimir: „Ég held að svarið við þessari spurningu sé frekar auðvelt.“
Athugasemdir