sun 08. október 2017 13:56
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Icelandair
Pyry sendir Íslendingum kveðju: Ég gerði mitt, nú er komið að ykkur
Icelandair
Pyry Soiri, þjóðhetja Íslendinga
Pyry Soiri, þjóðhetja Íslendinga
Mynd: instagram
Það er óhætt að segja að flestir Íslendingar gjörsamlega dýrki hinn finnska Pyry Soiri.

Hann Pyry skoraði jöfnunarmark Finna gegn Króatíu á föstudaginn, en það varð til þess að Ísland komst á topp riðils síns í undankeppni HM. Ísland er með örlögin í höndum sér og getur bókað farseðilinn til Rússlands með sigri á Kosóvó á morgun.

Á Twitter var kallað eftir fálkaorðu á Soiri og í gær var hann í skemmtilegu útvarpsviðtali í útvarpsþættinum Fótbolta.net. Þar þakkaði hann Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, fyrir kveðju sem hann fékk frá honum.

Aðdáendahópur hans var stofnaður á Facebook strax eftir leik og er kominn með tæplega 7000 meðlimi, langflestir Íslendingar.

Nú hefur þessi mikli snillingur ákveðið að kasta kveðju á Íslendinga fyrir leikinn mikilvæga gegn Kosóvó á morgun.

„Ég gerði mitt og nú er komið að ykkur. Gangi ykkur vel gegn Kosóvó," segir Pyry í myndbandi sem má sjá hér að neðan.

Sjá einnig:
Aron um Pyry Soiri: Kemur okkur ekkert við




Fótbolti.net er með alla anga úti í umfjöllun um leikinn gegn Kosóvó og hægt er að fylgjast með bak við tjöldin á samskiptamiðlum okkar, þar á meðal Fotboltinet á Snapchat.

Leikurinn verður í beinni textalýsingu hérna

Staðan? Skoðaðu möguleikana í riðli Íslands

Smelltu hér til að sjá líkegt byrjunarlið

Með því að smella hér má hlusta á ítarlega upphitun fyrir leikinn úr útvarpsþættinum



Slapp
banner
banner
banner