Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 03. september 2018 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Javi Gracia: Ekki auðvelt að vinna fjóra leiki í röð
Etienne Capoue og Abdoulaye Doucoure í gær.
Etienne Capoue og Abdoulaye Doucoure í gær.
Mynd: Getty Images
Javi Gracia er himinlifandi eftir fjórða sigur Watford í fjórum fyrstu úrvalsdeildarleikjum tímabilsins.

Watford fékk Tottenham í heimsókn og komust gestirnir yfir snemma í síðari hálfleik.

Heimamenn náðu að jafna og komast yfir og lokuðu sig í vörn eftir það. Tottenham fann ekki leið í gegn og frábær sigur Watford staðreynd.

„Ég er ótrúlega ánægður með þessa byrjun. Við erum að njóta stundarinnar, það er ekki auðvelt að vinna fjóra leiki í röð," sagði Gracia við Sky Sports.

„Við lögðum mikið á okkur í dag því þeir héldu boltanum vel innan liðsins. Við fórum almennilega í gang þegar þeir komust yfir og náðum að skipta um gír."

Bæði mörk Watford komu eftir föst leikatriði og sagðist Gracia vera sérstaklega ánægður með að liðið sé að nýta þau.
Athugasemdir
banner
banner
banner