Everton reynir við Bowen - Arsenal og City vilja Hjulmand - Arsenal heldur áfram að reyna við Rogers
   þri 25. september 2018 17:15
Magnús Már Einarsson
Deeney: Ég hata Van Dijk
„Ég hef sagt það oft áður, ég hata hann. Ég hata að mæta honum," sagði Troy Deeney, framherji Watford, þegar hann ræddi um Virgil van Dijk varnarmann Liverpool í dag.

Van Dijk kom til Liverpool frá Southampton í janúar og hefur bætt varnarleik liðsins mikið.

Deeney hefur oft mætt Van Dijk í gegnum tíðina og átt erfitt uppdráttar.

„Hann er of stór, of fljótur, of góður með boltann, hann elskar að berjast og hann er góður skallamaður."

„Þetta er einn af þeim sem setur boltann glæsilega út í hornin líka. Þegar hann hleypur framhjá þér þá hugsar þú 'ég gæti náð þér, en..."

Slapp
banner