Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   lau 06. október 2018 17:38
Ívan Guðjón Baldursson
Dyche: Guðmundsson er að spila afar vel þessa stundina
Mynd: Getty Images
Burnley gerði 1-1 jafntefli við Huddersfield í dag og lagði Jóhann Berg Guðmundsson eina mark heimamanna upp.

Jóhann átti mjög góðan leik og hrósaði Sean Dyche honum sérstaklega að leikslokum.

„Guðmundsson er að spila virkilega vel þessa stundina en mér fannst allir strákarnir standa sig vel í dag," sagði Dyche áður en hann fór að kvarta undan dómgæslunni.

„Þetta var skrítinn leikur. Við fengum þrjú gullin marktækifæri en á endanum vorum við heppnir að tapa ekki.

„Við áttum að fá vítaspyrnu en við erum búnir að læra það að við fáum ekki svoleiðis. Svo var augljóslega ýtt í bakið á Ben Mee í jöfnunarmarkinu þeirra.

„Það sem skiptir máli er að við náðum í 7 stig úr 3 leikjum."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner