Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 07. október 2018 22:43
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fáir gera betur en Jói Berg - „Í hæsta klassa"
Mynd: Getty Images
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhann Berg Guðmundsson hefur verið að spila frábærlega fyrir Burnley á tímabilinu.

Hann lagði upp mark liðsins fyrir Sam Vokes gegn Huddersfield um helgina, í 1-1 jafntefli.

Jóhann Berg er kominn með 12 stoðsendingar í ensku úrvalsdeildinni síðan í byrjun síðasta tímabils. Aðeins Leroy Sané (17), Kevin De Bruyne (16) og Raheem Sterling (13), leikmenn Manchester City, hafa gert betur en Íslendingurinn.


Magnaður árangur hjá Jóa Berg en það var rætt um hann í Messunni á Stöð 2 Sport í dag.

„Við höfum ekki átt svona tvo áberandi sóknarmenn (Gylfa og Jóhann Berg) á sama tíma. Þeir eru ekki í miðjuklassa, þeir eru komnir í hæsta klassa," sagði Reynir Leósson.

Umræðuna í Messunni má sjá með því að smella hér.

Framundan eru landsleikir gegn Frakklandi og Sviss. Jóhann Berg er mættur aftur eftir að hafa misst af síðustu landsleikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner