City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   lau 15. desember 2018 19:25
Arnar Helgi Magnússon
England: Fjórði sigur West Ham í röð
Fulham 0 - 2 West Ham
0-1 Robert Snodgrass ('17 )
0-2 Michail Antonio ('29 )

Fyrir kvöldið voru fimm ár síðan West Ham vann fjóra leiki í ensku úrvalsdeildinni í röð, með sigrinum gegn Fulham í kvöld gerðist það aftur.

Fulham byrjaði leikinn betur og voru óheppnir að ná ekki að setja fyrsta markið. Liðsmenn West Ham voru þolinmóðir og biðu eftir réttu tækifærunum.

Á 17. mínútu fékk Felipe Anderson boltann úti á vinstri kantinum, keyrði inn og senti boltann út á Robert Snodgrass sem átti snyrtilegt skot framhjá Sergio Rico, markverði Fulham.

Rúmum tíu mínútum síðar tvöfaldaði West Ham forystuna. Anderson fékk aftur boltann úti á vinstri kantinum og kom með fyrirgjöf sem að Chicharito náði að flikka á Michail Antonio sem beið eins og hrægammur fyrir aftan og kláraði færið þegar boltinn barst.

Fulham kom með sama andleysi inn í síðari hálfleikinn eins og þeir enduðu þann fyrri og 0-2 sigur West Ham staðreynd, þeirra fjórði í röð.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 31 21 7 3 61 22 +39 70
2 Man City 30 18 7 5 60 28 +32 61
3 Man Utd 30 15 9 6 54 41 +13 54
4 Aston Villa 30 15 6 9 40 37 +3 51
5 Liverpool 30 14 7 9 49 40 +9 49
6 Chelsea 30 13 9 8 53 35 +18 48
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 30 12 7 11 34 35 -1 43
9 Newcastle 30 12 6 12 43 43 0 42
10 Bournemouth 30 9 14 7 44 46 -2 41
11 Fulham 30 12 5 13 40 43 -3 41
12 Brighton 30 10 10 10 39 36 +3 40
13 Sunderland 30 10 10 10 30 35 -5 40
14 Crystal Palace 30 10 9 11 33 35 -2 39
15 Leeds 30 7 11 12 37 48 -11 32
16 Tottenham 30 7 9 14 40 47 -7 30
17 Nott. Forest 30 7 8 15 28 43 -15 29
18 West Ham 30 7 8 15 36 55 -19 29
19 Burnley 30 4 8 18 32 58 -26 20
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner