City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   þri 25. desember 2018 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hodgson: Liverpool á líka eftir að tapa óvænt
Roy Hodgson, stjóri Crystal Palace, gerði sínum gömlu félögum í Liverpool góðan greiða þegar Palace vann mjög svo óvæntan sigur á Manchester City á laugardag.

Palace vann leikinn 3-2 sem gerði það að verkum að Liverpool er með fjögurra stiga forskot á toppnum.

Á samfélagsmiðlum var talað um að þetta hefði verið það besta sem Roy Hodgson hefði gert fyrir Liverpool en hann náði ekki miklum árangri sem stjóri félagsins á sínum tíma.


Liverpool er enn taplaust en Hodgson telur að það muni ekki endast allt tímabilið. Hann segir að það sé óumflýjanleg að Liverpool tapi, jafnvel á svipaðan hátt og City gegn Palace.

„Ég held að Pep Guardiola muni ekki hafa áhyggjur af fjögurra stiga forskoti þegar 20 leikir eru eftir," sagði Hodgson, en þetta kemur fram hjá Goal.com.

„City á eftir að spila við Liverpool, en ef við hugsum ekki einu sinni um þann leik þá eru allar líkur á því að Liverpool muni lenda í einhverju svona."

„Það mun eitthvað lið vinna Liverpool óvænt, það er mikið eftir og það á eftir að gerast."
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 31 21 7 3 61 22 +39 70
2 Man City 30 18 7 5 60 28 +32 61
3 Man Utd 30 15 9 6 54 41 +13 54
4 Aston Villa 30 15 6 9 40 37 +3 51
5 Liverpool 30 14 7 9 49 40 +9 49
6 Chelsea 30 13 9 8 53 35 +18 48
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 30 12 7 11 34 35 -1 43
9 Newcastle 30 12 6 12 43 43 0 42
10 Bournemouth 30 9 14 7 44 46 -2 41
11 Fulham 30 12 5 13 40 43 -3 41
12 Brighton 30 10 10 10 39 36 +3 40
13 Sunderland 30 10 10 10 30 35 -5 40
14 Crystal Palace 30 10 9 11 33 35 -2 39
15 Leeds 30 7 11 12 37 48 -11 32
16 Tottenham 30 7 9 14 40 47 -7 30
17 Nott. Forest 30 7 8 15 28 43 -15 29
18 West Ham 30 7 8 15 36 55 -19 29
19 Burnley 30 4 8 18 32 58 -26 20
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner
banner