mið 09. janúar 2019 09:19
Arnar Helgi Magnússon
Pavard til Bayern - Klárar tímabilið með Stuttgart (Staðfest)
Heimsmeistarinn Benjamin Pavard mun ganga til liðs við þýska risann Bayern Munchen þann 1. júlí í sumar.

Pavard vakti fyrst athygli heimsbyggðarinnar á Heimsmeistaramótinu í sumar þar sem að hann lék fimm af sex leikjum Frakklands á mótinu.

Pavard er fæddur árið 1996 en hann kom til Stuttgart frá Lille árið 2016. Hann hefur fest sig í sessi sem lykilmaður Stuttgart.

Kaupverðið á Pavard er talið vera í kringum 35 milljónir evra.

Pavard skoraði mark mótsins á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi á móti Argentínu. Markið stórkostlega má sjá hér að neðan.

Slapp
banner
banner