Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 31. janúar 2019 20:08
Arnar Helgi Magnússon
Tielemans til Leicester - Silva til Mónakó (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Belginn Yuri Tielemans er genginn til liðs við Leicester á láni út leiktíðina en hann kemur frá Mónakó.

Tielemans er 21 árs gamall en hann kom til Mónakó frá Anderlecht árið 2017. Leikmaðurinn hefur verið á óskalista Leicester í þónokkurn tíma en hann hjálpaði Belgum í undanúrslit á HM í fyrra.

Mónakó fá þó leikmann í staðinn fyrir Tielemans en Leicester lánar Adrien Silva til félagsins út leiktíðina.

Silva hefur ekki tekist að festa sig í sessi í byrjunarliðinu frá komu sinni til Leicester fyrir ári síðan.

Silva, 29 ára gamall Portúgali, kom frá Sporting CP og kostaði 22 milljónir punda.

Tielemans verður strax gjaldgengur með Leicester og gæti því tekið þátt í leiknum gegn Manchester United á sunnudag.


Athugasemdir
banner
banner
banner