Breska lögreglan hefur staðfest að líkamsleifarnar sem að fundust í flugvél á sjávarbotni nú á dögunum séu af Emiliano Sala.
Líkið fannst á mánudag og var flutt til krufningar í gær. Vélin fannst á sjávarbotni nálægt eyjunni Guernsey.
Búið er að upplýsa fjölskyldu Sala um stöðuna en leit af David Ibbotson, flugmanni vélarinnar, mun halda áfram næstu daga.
Flugvélin hvarf fyrir tveimur vikum þegar Sala átti að fljúga til Cardiff til að ganga endanlega til liðs við sitt nýja félag.
Félagaskiptamálið er enn í gangi og hefur Nantes hótað Cardiff með lögsókn gangi velska félagið ekki frá fyrstu greiðslu fyrir sóknarmanninn innan tíu daga.
Rest in Peace ❤️ pic.twitter.com/sFMTL7oacD
— EPL Bible (@EPLBible) February 7, 2019
Athugasemdir