McKenna og Pochettino hafa áhuga á að taka við Man Utd - Chelsea í stjóraleit og ætlar að bjóða í Olise
   sun 24. febrúar 2019 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Heimild: LiverpoolFC.com 
Verður Salah sá sneggsti til að skora fimmtíu mörk fyrir eitt félag?
Mynd: Getty Images
Manchester United tekur á móti Liverpool í stórleik á Old Trafford klukkan 14:05 í dag. Mikilvægi leiksins er gífurlegt en Liverpool getur komist í toppsætið með því að fá stig. Heimamenn þurfa á sigri að halda til að halda í fjórða sætið í deildinni.

Mo Salah, leikmaður Liverpool, er í stöðu til að bæta met Alan Shearer. Shearer á metið yfir þá leikmenn sem hafa skorað fimmtíu mörk í sem fæstum leikjum fyrir eitt félag.

Salah er með 49 mörk í 62 leikjum fyrir Liverpool í deildinni. Fernando á metið hjá Liverpool en hann skoraði sitt fimmtugasta mark í sínum 72. leik.

Hér að neðan eru þeir fimm leikmenn sem voru sneggstir til að ná þessu afreki í Úrvalsdeildinni og félagið sem þeir náðu því með.

Alan Shearer 66 leikir Blackburn
Van Nistelrooy 68 leikir Manchester United
Fernando Torres 72 leikir Liverpool
Sergio Aguero 81 leikir Manchester City
Carlos Tevez 82 leikir Manchester City
Athugasemdir
banner
banner
banner