Hákon hættur hjá HK - Ólíklegt að Árni spili með þeim
Árni Arnarson og Hákon Þór Sófusson sem léku með HK í Inkasso-deildinni í sumar eru samningslausir. Hákon Þór mun ekki leika með HK í Pepsi Max deildinni í sumar og ólíklegt þykir að Árni leiki með liðinu. Þetta staðfestu þeir í samtali við Fótbolta.net.
Árni lék 19 leiki með HK í fyrrasumar þegar liðið tryggði sér upp í Pepsi Max deildina og skoraði eitt mark. Árni hefur leikið með HK frá sumrinu 2013, þegar hann gekkt til liðs við félagið frá Tindastól.
Árni lék 19 leiki með HK í fyrrasumar þegar liðið tryggði sér upp í Pepsi Max deildina og skoraði eitt mark. Árni hefur leikið með HK frá sumrinu 2013, þegar hann gekkt til liðs við félagið frá Tindastól.
Hákon Þór lék 13 leiki með HK og skoraði eitt mark. Hann gekk í raðir HK fyrir sumarið 2017 frá Fjarðabyggð þar sem hann hafði spilað allan sinn meistaraflokksferil.
„Það hefur verið mikið að gera í náminu í vetur þannig ég hef haft minni tíma í þetta og hef því ekki verið að æfa með þeim í vetur. Eins og staðan er núna þá geri ég ekki ráð fyrir að vera í fótbolta í sumar," sagði Árni í samtali við Fótbolta.net.
„Það er ekki alveg klárt að ég sé hættur í HK, ætli maður orðaði það ekki svoleiðis að ég er í pásu."
„Ég spila ekki með HK í sumar. Það er ekkert komið í ljós hvað ég geri. Ég hef fengið boð frá öðrum félögum en áhuginn er ekki alveg í botni hjá manni eins og staðan er," sagði Hákon Þór Sófusson í samtali við Fótbolta.net.
HK
Komnir:
Arnþór Ari Atlason frá Breiðabliki
Atli Arnarson frá ÍBV
Ásgeir Börkur Ásgeirsson frá Fylki
Emil Atlason frá Þrótti R.
Farnir:
Aron Elí Sævarsson í Val (Var á láni)
Sigurpáll Melberg Pálsson í Fjölni (Var á láni)
Zeiko Lewis (Var á láni)
Samningslausir:
Árni Arnarson
Eiður Gauti Sæbjörnsson
Hákon Þór Sófusson
Ingiberg Ólafur Jónsson


